Veeei, gaman gaman. Ég er komin með hósta og það ljótan. Jæja, ég get allavega verið fegin að ég er búin að syngja á tónleikunum, sem gengu bara vel, takk fyrir að spyrja!!! Híhí, ég er í spænsku og kennarinn stendur rétt við hliðina á mér : ) ég er slæm!! Ég er búin með verkefnið mitt, þannig að þeta er í lagi. Við erum að skrifa grein í spænsku og ætlum svo að gera svona dagblað (periódico). Gamangaman. Nú er verið að reka á eftir okkur að ganga frá, svo förum við að gera eitthvað annað í seinni tímanum. Ég sem hélt að ég væri laus af króknum. Jæja, sjáumst og ég elska ykkur sama hve lasin ég verð.
skrifað af Runa Vala
kl: 14:06
|